Norðlæg átt 5-10 m/s, en heldur hvassara norðvestantil. Skýjað með köflum og dálítil væta af og til, en úrkomulítið suðvestanlands.
Hiti frá 4 stigum á Norðausturlandi að 15 stigum suðvestantil.
Spá gerð 03.07.2024 21:59
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
3,3 | 03. júl. 03:47:32 | Yfirfarinn | 17,7 km SSV af Eiríksjökli |
2,9 | 03. júl. 03:45:57 | Yfirfarinn | 17,3 km SSV af Eiríksjökli |
2,6 | 03. júl. 00:49:11 | Yfirfarinn | 168,5 km NNA af Kolbeinsey |
Um það bil korter í 4 í nótt urðu tveir skjálftar um 3 að stærð við Geitlandsjökul í Langjökli. Sá stærri var 3,3 að stærð og minni 2,9. Engar tilkynningar hafa borist um að skjálftinn hafi fundist.
Eldgos í Sundhnúksgígaröð.
Landrisið undir Svartsengi heldur áfram. Hraði landrisins jókst eftir að gosi lauk og er nú orðin meiri en það sem mældist fyrir gosið sem hófst 29. maí. Hraða aflögunar má túlka sem að kvikuinnstreymi inn í kvikuhvolfið á 4-5 km dýpi haldi áfram.
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 03. júl. 05:39
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Vegna bilunar höfum við þurft að slökkva á þjónustunni sem birtir gögn frá vatnamælistöðvum á kortinu. Í staðinn er hægt að nálgast gögnin í Rauntímavöktunarkerfi.
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 01. jún. 17:58
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | Barst ekki | Barst ekki | Barst ekki |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
![]() |
![]() |
![]() |
Norðanverðir Vestfirðir
|
![]() |
![]() |
![]() |
Tröllaskagi utanverður
|
![]() |
![]() |
![]() |
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
![]() |
![]() |
![]() |
Austfirðir
|
![]() |
![]() |
![]() |
Uppfært 2. júlí kl. 15:50
Hraði landriss er meiri nú en fyrir gosið 29. maí og á svipuðum hraða og það var í byrjun árs, en það hafa ekki verið miklar breytingar milli atburða hvað varðar hraðann á landrisinu. Líkan byggt á aflögunargögnum sýnir að innflæði kviku inn í kvikuhólfið undir Svartsengi er nú 4-6 m3/s. Í upphafi kvikuinnskotsins og síðan eldgossins 29. maí er metið að um 13-19 milljón m3 hafi farið úr kvikuhólfinu. Niðurstöður líkanreikninga gefa til kynna að miðað við núverandi innflæði verður kvikuhólfið undir Svartsengi komið í svipaða stöðu og fyrir eldgosið 29. maí eftir þrjár til sex vikur. Frá og með deginum í dag er því líklegt að kvikuhlaup og/eða eldgos fari af stað á næstu vikum og mánuðum.
Lesa meiraSamkvæmt lögum annast Veðurstofan rauntímavöktun á náttúruvá og skal gefa út viðvaranir og spár um yfirvofandi hættu af völdum m.a. jarðskjálfta, eldgosa og jökulhlaupa. Veðurstofan hefur einnig það hlutverk að vera yfirvöldum til ráðgjafar varðandi forvarnir og viðbrögð við náttúruvá. Hluti af því er að meta reglulega og veita upplýsingar um hættu vegna eldfjallavár líkt og í atburðarrásinni á Reykjanesskaga síðustu ár.
Lesa meiraPrófessor Celeste Saulo, nýkjörinn aðalritari Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) kom í heimsókn á Veðurstofuna þann 18. júní og hitti Hildigunni Thorsteinsson, nýráðinn forstjóra. Hún heimsótti m.a. eftirlitssal Veðurstofunnar þar sem Helga Ívarsdóttir, deildarstjóri Veðurspár og náttúruvöktunar, Óli Þór Árnason veðurfræðingur og Salóme Jórunn Bernharðsdóttir náttúruvársérfræðingur sögðu henni frá hinu veigamikla og yfirgripsmikla hlutverki sem vaktin sinnir allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Lesa meiraÞann 19. mars náðist stór áfangi í Veðursetur vestur (UWC-W samstarfinu). Formlegur rekstur á ofurtölvunni er hafinn og veðurstofurnar fjórar á Íslandi, Írlandi og í Danmörku og Hollandi taka í rekstur sameiginlega veðurlíkanareikninga. Formlegur rekstur þýðir að sameiginlegir veðurspárreikningar og rekstur ofurtölvunnar, sem er hýst í kjallaranum á B7, eru vaktaðir allan sólarhringinnn til að tryggja framsleiðsluna og gagnaflæði.
Lesa meiraMaí var tiltölulega hlýr, sérstaklega á norðaustan- og austanverðu landinu. Þar var sólríkt og þurrt. Það var tiltölulega kaldara og úrkomusamara suðvestan- og vestanlands.
Lesa meiraStöku sinnum sést fjöldi snjóbolta, sem vindur hefur búið til, á dreif um sléttar snævi þaktar grundir, jafnvel hundruð bolta á einum túnbletti. Ekki er kunnugt um sérstakt nafn á fyrirbrigðinu.
Lesa meira